Nýr hvalaskoðunarbátur

Nýr hvalaskoðunarbátur

Nýr hvalaskoðunarbátur kom til Dalvíkur á dögunum. Hann tekur um 25 farþega og er meðal annars búinn neðansjávarmyndavél. Um er að ræða 20 tonna eikarbát sem hefur hlotið nafnið Snorri og ber einkennisstafina EA 317. Þegar hefur Snorri farið í nokkra ferðir og ágætlega lítur út með sumarið.