Nýársganga Ferðafélags Svarfdæla

Nýársganga Ferðafélags Svarfdæla

Hin árlega nýársganga Ferðafélags Svarfdæla hefst við Kóngsstaði í Skíðadal klukkan 13:00 á nýársdag. Gengið verður að Stekkjarhúsi og aftur til baka eftir notalega nestisstund þar. Gönguaðferð er frjáls en gönguskíðin henta væntanlega vel í ár og hægt að draga börn á sleðum. Allir eru hjartanlega velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta.

Stjórn ferðafélagsins.