Ný íþróttamiðstöð í Dalvíkurbyggð

Ný íþróttamiðstöð í Dalvíkurbyggð

Á morgun, laugardaginn 2. október, verður ný íþróttamiðstöð vígð og tekin í notkun á Dalvík. Bygging hennar hófst haustið 2008 og hefur því tekið tvö ár. Hönnuður hússins er Fanney Hauksdóttir, arkitekt, AVH á Akureyri, aðalverktaki er Tréverk hf. á Dalvík og umsjón var í höndum tæknideildar Dalvíkurbyggðar. Heildarkostnaður við bygginguna með búnaði er um 600 milljónir kr. Húsið er tengt Sundlaug Dalvíkur, sem verður þannig hluti íþróttamiðstöðvarinnar.

Byggingin er um 2000 m2, þar af jarðhæð 1700m2. Alls er húsið um 13.700 m3. Íþróttasalur er með löglegan keppnisvöll fyrir handbolta og áhorfendapallar rúma um 300 manns. Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir fréttamenn til lýsinga á íþróttaviðburðum. Á efri hæð er afgreiðsla og þreksalur þar sem bæði er útsýni yfir sundlaug og inní íþróttasal. Utanhúss eru bílastæði fyrir 130 bíla.

Ný íþróttamiðstöð er merkur áfangi í sögu sveitarfélagins. Stærð íþróttasalar rúmlega þrefaldast frá því sem áður var á Dalvík, en íþróttamiðstöðin tekur við af húsi sem byggt var 1967 þar sem salurinn var 338 m2.

Vígsludagskrá í húsinu:
Vígsludagskráin hefst í íþróttamiðstöðinni kl. 11 og í framhaldi af henni verður boðsmót í frjálsum íþróttum þar sem keppt verður í stangarstökki, hástökki og sprettum. Þar taka þátt sterkustu íþróttamenn landsins í viðkomandi greinum. Sunnudaginn 3. október verður dagskrá í húsinu í boði íþróttafélaganna allan daginn. Allir eru velkomnir á viðburðina þessa daga.