Norðurlandsjakinn á Dalvík í dag

Í dag, föstudaginn 26. ágúst kl. 12:00,  fer hluti keppninni Norðurlandsjakinn fram á Dalvík en keppnin fer í heildina fram á Norðurlandi dagana 25.-27. ágúst. Á Dalvík fer keppnin fram á túninu norðan við heilsugæsluna þar sem kapparnir taka þátt í kútakasti yfir vegg. Allir eru velkomnir að koma og horfa á.

Dagskrá Norðurjakans:

Fimmtudagurinn 25. ágúst

Kl. 12:00 Hvammstangi. Öxullyfta við Selasetrið
Kl. 17:00 Blönduós. Réttstöðulyfta við Blönduskóla

Föstudagurinn 26. ágúst

Kl. 12:00 Dalvík. Kútakast yfir vegg norðan við heilsugæsluna
Kl. 17:00 Húasvík. Uxaganga á hafnarsvæðinu


Laugardagurinn 27. ágúst

Kl. 12:00 Sauðárkrókur. Atlast steinn tjaldsvæðinu á Nöfunum
Kl. 16:00 Skagaströnd. Keflisglíma á útisviði Hólanesi