Niðurgreiðsla ferðakostnaðar fyrir skólafólk

Niðurgreiðsla ferðakostnaðar fyrir skólafólk

Ákveðið hefur verið að greiða fargjöld skólafólks úr Dalvíkurbyggð sem sækir nám á Akureyri niður um kr.10 þúsund fyrir hvert 40 ferða kort.

Skólanemar geta keypt afsláttarkort hjá sérleyfishafa. Ef þeir síðan framvísa kvittun fyrir þeim kaupum og vottorði um skólavist í þjónustuveri Dalvíkurbyggðar fá þeir 10 þúsund krónur endurgreiddar. Hægt er fá slíka niðurgreiðslu í hvert sinn sem kort er keypt, þó ekki oftar en einu sinni í mánuði.

                                    Bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð