Mikið um að vera á Dalvíkurvelli

Mynd: Jóhann Már Kristinsson
Mynd: Jóhann Már Kristinsson

Á heimasíðu Dalvíkur/Reynis, dalviksport.is, kemur fram að föstudaginn 21. maí verði toppslagur í Pepsi Max deild karla á milli KA og Víkings Reykjavíkur sem mun fara fram á Dalvíkurvelli. Leikurinn fer fram klukkan 18.00 og mun miðasala á leikinn fara fram í gegnum Stubb appið.

KA menn hafa verið í vandræðum með sinn heimavöll og hafa því leitað til Dalvíkur.
Þeir léku fyrsta heimaleik sinn í 3. umferð einnig á Dalvíkurvelli þegar þeir unnu 3-0 sigur á Leikni Reykjavík.

Þá spilar Dalvík/Reynir einnig um helgina á Dalvíkurvelli en þeir eiga leik gegn Ægi Þorlákshöfn á laugardaginn kl. 14.00.

Yngriflokkar UMFS eiga líka leiki á Dalvíkurvelli um helgina og því nóg um að vera á svæðinu.