Miðvikudagsgöngu ferðafélagsins seinkað um eina klukkustund

Miðvikudagsgöngunni í dag verður seinkað um eina klukkustund vegna leiks Íslendinga á HM. Farið verður frá Olís klukkan 18:15 í göngu um Friðland Svarfdæla undir leiðsögn hins margfróða Kristjáns E. Hjartarsonar. Göngunni lýkur við Húsabakka þar sem hægt verður að skoða sýninguna Friðland fuglanna svo gera þarf ráð fyrir kostnaði fyrir þá sem ætla að skoða hana. Ferðin er öllum opin og tilvalin til að njóta góðrar útiveru í blíðviðrinu.