Miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla

Síðasta miðvikudagsgangan á vegum Ferðafélags Svarfdæla verður farin á Hillur norðan Fagraskógar á morgun. Safnast verður saman í bíla á bílastæði norðan Dalvíkurkirkju þaðan sem farið verður klukkan 17:15. Ferðin er við flestra hæfi og eru allir velkomnir.