Miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla

Miðvikudagsganga Ferðafélags Svarfdæla þessa vikuna er á Bæjarfjallið. Lagt verður af stað frá bílastæði norðan Dalvíkurkirkju klukkan 17:15 og tekur gangan allt að 4 klst. Dóra Reimars mun leiða gönguna. Nauðsynlegt er að vera vel skóaður.