Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu

Nú stendur yfir ljósmyndasýning á fyrstu hæð í Ráðhúsi Dalvíkur sem ber yfirskriftina ,,Fólk í fréttum" og verða myndirnar til sýnis út september. Um er að ræða úrval ljósmynda sem fréttaritarar og ljósmyndarar Morgunblaðsins á landsbyggðinni hafa tekið.

Eru íbúar Dalvíkurbyggðar hér með hvattir til að gera sér ferð í Ráðhúsið til að skoða þessa stórskemmtilegu sýningu.