Leikskólinn Leikbær óskar eftir leikskólakennara

Leikskólinn Leikbær óskar eftir að ráða leikskólakennara/leiðbeinanda í tímabundið hlutastarf frá 25. maí.


Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Gitta U. Ármannsdóttir í síma 466 1971 og 849 8934. Umsóknarfrestur er til 5. maí. Umsóknum ber að skila til Leikbæjar eða á netfangið leikbaer@dalvikurbyggd.is  og verður móttaka staðfest.

Hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Hreint sakavottorð

Leikbær er staðsettur í Árskógi sem er í um 10 km. fjarlægð frá Dalvík og 35 km. frá Akureyri. Umhverfi skólans er einstakt, mikil nálægð er við náttúru og sveit. Lögð er áhersla á útikennslu og fjölmenningarlega kennslu. Í leikskólanum er ein aldursblönduð deild, nemendur eru á aldrinum 9 mánaða til 6 ára. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um skólann á heimasíðu Leikbæjar