Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinenda

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinenda

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinenda í 90% starf frá og með 1. september 2020.

Hæfniskröfur:

- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð færni í mannlegum samskipum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta er æskileg

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is umsókn skal fylgja ferilskrá og nöfn umsagnaraðila.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Greitt er samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa er greitt samkvæmt kjarasamningi Kjalar

Umsóknafrestur er til 21. ágúst 2020

Ef umsækjendur uppfylla ekki kröfurnar hér að ofan áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Upplýsingar veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is

Á Krílakoti eru börn á aldrinum 9 mánaða - 6 ára. Deildirnar eru fimm og heita Skýjaborg, Sólkot, Mánakot, Kátakot og Hólakot. Haustið 2010 tók Krílakot sín fyrstu skref í átt að innleiðingu Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga sem er hugmyndafræði sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum. Aðferðin er kennd við Diane Gossen frá Kanada. Haustið 2018 var farið að vinna með Lubbi finnur málbein sem er námstæki til að læra íslensku málhljóðin. Einnig höfum við flaggað Grænfána í ein 4 skipti. Leikskólinn Krílakot hefur sett sér það markmið að efla útiveru barnanna með útikennslu. Verkefnin fara eftir aldri og þroska barnanna og koma inn á öll námsvið. Í Krílakoti hafa einnig verið unnin fjölmörg þróunarverkefni og má þar nefna verkefni tengd lestri, stærðfræði og fjölmenningu.

Hægt er að kynna sér meira um leikskólann á heimasíður Krílakots https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot