Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennara.

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennara.
  • Leikskólakennari í 100% starf

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskipum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra

Sótt er um á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is.

Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Umsóknarfrestur er til 9. september 2018.

Upplýsingar veitir: Guðrún H. Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is.

Sæki enginn leikskólakennari um verður ráðið í stöðuna með tilliti til menntunar og fyrri starfsreynslu.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Í Krílakoti eru börn á aldrinum 9 mánaða - 6 ára. Deildirnar eru fimm og heita Skýjaborg, Sólkot, Mánakot, Kátakot og Hólakot. Haustið 2010 tók Krílakot sín fyrstu skref í átt að innleiðingu Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga sem er hugmyndafræði sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum. Aðferðin er kennd við Diane Gossen frá Kanada, en hún hefur þróað aðferðina og kennt hana víða um heim. Í Krílakoti hafa einnig verið unnin fjölmörg þróunarverkefni og má þar nefna verkefni tengd lestri, stærðfræði, fjölmenningu og útikennslu.