Leiklist hjá unglingum

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn
5. nóvember næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk „Saga hússins...“ eftir Arnar Símonarson og leikhópinn.
Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjötta sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 vikur fyrir þessa vinnu, endurgjaldslaust og félagsmenn, auk foreldra nemenda aðstoða auk þess varðandi búninga, leikmuni og fleira.
Leiklist er kennd sem valgrein í 8.,9. og 10. bekk í Dalvíkurskóla og hvorki fleiri né færri 28 nemendur sækja þessa faggrein í vetur !
Leiðbeinandi leikhópsins og leikstjóri uppfærslunnar er Arnar Símonarson, kennari og samfélagsþjálfi.
Æft er síðdegis og á kvöldin alla virka daga.

Arnar segir að verkið sem slíkt sé fjörugt með fullt af skemmtilegum augnablikum, en það er unnið út frá skapandi hugmyndavinnu. „Í miklu rigningarveðri koma ung hjón að skoða hús. Þau hitta fyrir gamlan mann sem segir þeim sögu þess. Og margt skrýtið og skondið gerist.“

Kristján Guðmundsson og Hans Friðrik Hilarius og Dagur Halldórsson sjá um ljósavinnu, Aron Óskarsson sér um hljóð og Guðný Ólafsdóttir hannar leikskrá. Umsjón með miðasölu er í höndum Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttir. Áætlaðar eru 8 sýningar á verkinu.

Miðapantanir í síma 865 3158 (Lovísa María)

Sýningar !!

Föstudagur   5. nóv.   Kl. 18.00   Frumsýning.
Laugardagur 6. nóv.   Kl. 16.00   2. sýning.
Laugardagur 6. nóv.   Kl. 18.00   3. sýning.
Sunnudagur  7. nóv.   Kl. 16.00   4. sýning.
Sunnudagur  7. nóv.   Kl. 18.00   5. sýning.
Mánudagur    8. nóv.   Kl. 20.30   6. sýning
Þriðjudagur   9. nóv.    Kl. 20.30   7. sýning.
Föstudagur  12. nóv.   Kl. 18.00   8. sýning.

Ath! Aðeins þessar sýningar í boði!

Verð : Börn yngri en 6 ára : 400.-
Börn á grunnskólaaldri 700.-
Fullorðnir 1.000.-

Auglýsing