Laust starf umsjónarkennara í Dalvíkurskóla

Umsjónarkennara vantar í Dalvíkurskóla.

Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Frumkvæði og metnaður í starfi og geta til að vinna í teymi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Faglegur metnaður til að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi

Dalvíkurskóli er 230 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking og færni - virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og Pals- lestraraðferðinni. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni

Umsóknarfrestur er til 27. maí 2016

Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is  símar 460 4980 og 863 1329. Umsókn ásamt ferilsskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is .