Laust starf forstöðumanns vinnuskóla

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laust starf forstöðumanns vinnuskóla. Um er að ræða starf sem hefur verið í mótun frá sumrinu 2014. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag og þarf viðkomandi að vera góð fyrirmynd, sterkur leiðtogi og hafa áhuga á að vinna með ungmennum. Gildi sviðsins eru virðing, jákvæðni og metnaður.

Starfstími er frá 1.maí – 31. ágúst 2016

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Hafið sé háskólanám sem nýtist í starfi, kostur ef um uppeldismenntun er að ræða
• Tuttugu ára eða eldri.
• Reynsla af störfum með ungmennum er kostur
• Góð samskiptahæfni, skipulags¬færni og eiga gott með að hafa yfirsýn
• Hæfni til að stuðla að jafnræði og réttlæti í samfélaginu
• Einlægur áhugi á umhverfismálum
• Bílpróf
• Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/  (almenn atvinnuumsókn, merkist: „forstöðumaður Vinnuskóla“)

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið og sýn á góðan vinnuskóla.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is ), íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar