Laust hlutastarf við félagsmiðstöðina Týr

Laust hlutastarf við félagsmiðstöðina Týr

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laust hluta starf við félagsmiðstöðina Týr

 
Starfstími er frá byrjun september – 31. maí.
 
Hæfniskröfur:
 
·        Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
·        Metnaðarfullur í starfi og hæfni til að vinna í hóp
·        Hæfni í mannlegum samskiptum
·        Frumkvæði og þörf til að ná árangri
·        Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
·        Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er kostur
·        Hreint sakavottorð.
 
 
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst nk.
 
 
Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar. Umsókn ásamt ferilskrár og kynningarbréf skulu send rafrænt á gislirunar@dalvikurbyggd.is eða skilað til ritara í Ráðhúsinu á Dalvík.