Laust er til umsóknar tímabundið starf á Byggðasafninu Hvoli 2018

Laust er til umsóknar tímabundið starf á Byggðasafninu Hvoli 2018

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf á Byggðasafninu Hvoli. Um er að ræða almennt starf.

 

Opnunartími/vinnutími er eftirfarandi:

Sumaropnun til og með 31. ágúst frá kl. 11:00 - 18:00 alla daga vikunnar.

Vetraropnun er á laugardögum frá 1. september til 30. nóvember frá kl. 14:00 - 17:00. Lokað er í desember.

 

Starfssvið:

  • Starfsmaður er ábyrgur fyrir opnun og lokun safnsins og þjónustu við viðskiptavini
  • Almenn þrif

 

Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri
  • Tungumálakunnátta er nauðsynleg – enska
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þægilegt viðmót
  • Frumkvæði, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af afgreiðslustörfum er kostur
  • Hreint sakavottorð

 

Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst n.k. Umsóknum er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf skal senda á netfangið hlynur@dalvikurbyggd.is, merkt „Atvinnuumsókn 2018 – Byggðasafnið Hvoll“

 

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Frekari upplýsingar veitir Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs í síma 853-1968.