Laust er til umsóknar starf hjá veitum Dalvíkurbyggðar

Laust er til umsóknar starf hjá veitum Dalvíkurbyggðar

Umsóknarfrestur er til 4. apríl 2017.

Um er að ræða almennt starf sem lítur að viðhaldi og eftirliti með veitukerfum ásamt nýlögnum. Iðnmenntun í pípulögnum eða nám í jarðlagnatækni er kostur. Laun eru samkvæmt kjarasamningi á milli Launanefndar sveitafélaga og Kjalar.

Umsóknir skal senda á netfangið steini@dalvikurbyggd.is 

Upplýsingar um starfið fást hjá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs Dalvíkurbyggðar í síma 460-4922 eftir mánudaginn 27. mars.