Lausar stöður við Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóli leitar að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2016:

Dönskukennara
Náttúrufræðikennara á unglingastigi

Hæfniskröfur:

· Grunnskólakennarapróf
· Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
· Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
· Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi
· Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
· Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi


Dalvíkurskóli er 230 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og PALS. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni.


Umsóknarfrestur er til 17. maí 2016


Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is , símar 4604980 og 8631329. Umsókn ásamt ferilsskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.