Lausar stöður kennara við Dalvíkurskóla

Lausar stöður kennara við Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóli leitar að öflugum kennurum í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2017

 Náttúrufræðikennara á unglingastig í 70% starf og umsjónarkennara á miðstig í 100% starf

Hæfniskröfur:

-          Grunnskólakennarapróf

-          Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum

-          Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur

-          Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi

-          Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna

-          Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi

 

Dalvíkurskóli er 220 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og PALS. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni.

Umsóknarfrestur er til 05. maí 2017

Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Umsókn ásamt ferilsskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.

 Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.