Laus störf flokksstjóra vinnuskóla

Laus störf flokksstjóra vinnuskóla

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf flokksstjóra vinnuskóla. Gildi sviðsins eru virðing, metnaður og jákvæðni.

Flokksstjórar vinnuskóla vinna náið með umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar og geta því einnig þurft að sinna störfum á því sviði. 

Starfstími er frá 30. maí – 12. ágúst 2016

Hæfniskröfur:

• Uppeldismenntun eða reynsla af störfum með börnum og unglingum er kostur.
• Tuttugu ára eða eldri.
• Stjórnunarhæfileikar og skipulagsfærni sem og góð fyrirmynd í leik og starfi.
• Góð samskiptahæfni og áhugi á jafnréttismálum í víðum skilningi.
• Áhugi á útivinnu og umhverfismálum.
• Bílpróf.
• Hreint sakavottorð.


Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2016. Athugið að um framlengdan frest er að ræða.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/  

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is ), íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar