Kolfinna 5 ára

Kolfinna 5 ára

Hún Kolfinna átti afmæli á sjálfan öskudaginn. Við flögguðum að sjálfsögðu íslenska fánanum í tilefni dagsins og sungum fyrir hana afmælissönginn. Kolfinna gerði sér fína kórónu og fékk að vera fyrst að slá köttinn úr tunnunni. Hún var svo þjónn í hádeginu. Við óskum Kolfinnu og fjölskyldu hennar til hamingju  með daginn.