Kaffispjall fyrir ferðaþjónustuaðila

Kaffispjall fyrir ferðaþjónustuaðila

Dalvíkurbyggð og SSNE bjóða ferðaþjónustuaðilum í kaffispjall í Menningarhúsinu Bergi, þriðjudaginn 8. mars kl. 11:00.
Allir ferðaþjónustuaðilar og þeir sem starfa í ferðaþjónustu á svæðinu eru velkomnir.

Umræðuefni fundarins eru t.d. möguleg móttaka skemmtiferðaskipa í Dalvíkurhöfn, hvernig hefur gengið hjá ferðaþjónustuaðilum í heimsfaraldrinum, bókunarstaða sumarsins og önnur málefni sem brenna á gestum.

Ekki hika við að hafa samband ef þið eruð með einhverjar spurningar.

Gott væri að þeir sem hafa áhuga skrái sig á fundinn uppá veitingarnar.
Við hlökkum til að sjá sem flesta.

Íris Hauksdóttir, irish@dalvikurbyggd.is, s. 847-4176
Anna Lind, annalind@ssne.is, s. 848-7440