Kæru foreldrar/forráðamenn barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2015

Kæru foreldrar/forráðamenn barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2015

Í Dalvíkurbyggð starfa tveir skólar á grunnskólastigi, Árskógarskóli (1. – 7. bekkur auk leikskólastigs) og Dalvíkurskóli (1. – 10. bekkur). Skólaakstur er í boði milli þéttbýliskjarnanna svo mögulegt er að barn frá Dalvík sæki skóla í Árskógi og öfugt. Þar sem valið er ykkar biðjum við ykkur góðfúslega að innrita barnið í annan hvorn skólann fyrir 15. apríl.

Innritun nýrra nemenda fer nú fram í gegnum rafræn eyðublöð á íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Vinsamlega farið á íbúagáttina á slóðinni http://min.dalvikurbyggd.is  til að innrita nemendur í skólann.

Til að skrá sig inn á íbúagáttina þarf notandi að hafa Íslykil eða rafræn skilríki. Hafir þú ekki Íslykil getur þú sótt um hann hér.

Starfsfólk skólanna veitir nánari upplýsingar og aðstoð ef með þarf. Hægt er að hringja í skólastjóra Árskógarskóla í síma 460-4971 eða senda tölvupóst á gunnthore@dalvikurbyggd.is .
Hægt er að hringja í Dalvíkurskóla í síma 460-4980 eða senda tölvupóst á netfangið ritari@dalvikurbyggd.is .


Virðingarfyllst,


Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla
http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/  

Gísli Bjarnason,  skólastjóri Dalvíkurskóla
http://dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli/