Jólaskreytingarsamkeppni í Dalvíkurbyggð 2021

Sigurvegarar skreytingarsamkeppninnar jólin 2020 - Soffía og Bóas í Dalbraut 9 á Dalvík
Sigurvegarar skreytingarsamkeppninnar jólin 2020 - Soffía og Bóas í Dalbraut 9 á Dalvík

Jólaskreytingasamkeppni í Dalvíkurbyggð 2021 fer fram nú í desember. Samkeppnin er líkt og í fyrra samvinnuverkefni Dalvíkurbyggðar og DB-blaðsins.
Íbúar eru hvattir til að láta ljós sitt skína til að gleðja sig og aðra.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk annarra skemmtilegra viðurkenninga.

Í dómnefnd sitja:

Heiðdís Björk Gunnarsdóttir, fyrir hönd DB blaðsins.
Gísli Rúnar Gylfason, fyrir hönd Dalvíkurbyggðar
Guðrún Inga Hannesdóttir, fyrir hönd íbúa

Dómnefndin verður að störfum í kringum 10. desember og verða úrslit kynnt í jólablaði DB blaðsins, þann 16. desember og síðdegis sama dag á heimasíðu sveitarfélagsins.