Jólagjöf til starfsmanna Dalvíkurbyggðar – gjafabréf

Jólagjöf til starfsmanna Dalvíkurbyggðar – gjafabréf

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. 

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Dalvíkurbyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Gert er ráð fyrir að gjafabréfin verði hægt að nota frá 7. desember 2016 til og með 15. janúar 2017.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera sem og starfandi í Dalvíkurbyggð. Skráningarfrestur er til 2.desember.

Skráning fer fram á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is  og nánari upplýsingar gefur Margrét í síma 460 4908.