Jarðskjálftar út af Norðurlandi

Almennur fundur á vegum Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra verður í Fjallabyggð miðvikudaginn 31.10.2012 klukkan 17:00 í grunnskólanum við Norðurgötu, Siglufirði og í Menningarhúsinu Bergi, Dalvíkurbyggð, sama dag kl. 20:00.

Fundarefni er jarðskjálftar út af Norðurlandi og verður dagskrá á þessa leið:


• Kynning [ Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra]

• Jarðskjálftar á Norðurlandi, hvað veldur? [Veðurstofa Íslands og sérfræðingar]

• Áætlanir, viðbragð [AVD/lögreglustjóri]

• Hvað getur fólk gert? (Forvarnir, viðbragð, eftirfylgni) [AVD Guðrún Jóhannesdóttir]

• Næstu skref [AVD/lögreglustjóri]

Að fundi loknum verða umræður og tekið við fyrirspurnum frá fundarmönnum.