Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir lausa 100% stöðu

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir lausa 100% stöðu

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir kvenmanni í 100% starf við laugarvörslu, afgreiðslu, þrif og baðvörslu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2018.

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar leggur áherslu á öryggi gesta, að veita góða þjónustu og að aðstaða sé ávallt snyrtileg. Það er líf og fjör í Íþróttamiðstöðinni frá morgni til kvölds.

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
• Umsjón með öryggi sundlaugargesta.
• Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
• Eftirfylgni með umgengnisreglum.
• Eftirlit með gæðum laugarvatns.
• Þrif og ræsting.
• Minniháttar daglegt viðhald.
• Önnur störf falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur
Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa ríka þjónustulund, vera stundvís, hafa ágæta tölvukunnáttu og að taka frumkvæði.
Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sbr. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Starfsmenn þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/ eða senda umsókn í tölvupósti á gislirunar@dalvikurbyggd.is 

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og  rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is) ,  íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar