Íþróttamiðstöð Dalvíkur auglýsir eftir karlmanni og kvenmanni í tilfallandi afleysingu

Íþróttamiðstöð Dalvíkur auglýsir eftir karlmanni og kvenmanni í tilfallandi afleysingu


Ekki er um fastar vaktir að ræða, heldur óreglulega tilfallandi afleysingu þegar þarf.

Íþróttamiðstöð Dalvíkur leggur áherslu á öryggi gesta, veita góða þjónustu og að aðstaða sé ávallt snyrtileg. Það er líf og fjör í Íþróttamiðstöðinni frá morgni til kvölds.

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
• Umsjón með öryggi sundlaugargesta.
• Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
• Eftirfylgni með umgengnisreglum.
• Eftirlit með gæðum laugarvatns.
• Þrif og ræsting.
• Minniháttar daglegt viðhald.
• Önnur störf falin af yfirmanni.

Hæfniskröfur
Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa ríka þjónustulund, vera stundvís, hafa ágæta tölvukunnáttu og að taka frumkvæði.
Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sbr. reglugerð fyrir sundstaði. Starfsmenn þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.


Áhugasamir hafi samband við Gísla Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í síma 4604913 eða með því að senda fyrirspurnir á gislirunar@dalvikurbyggd.is