Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2016 - íbúakosning

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2016 - íbúakosning

Samkvæmt reglum Dalvíkurbyggðar um kjör á íþróttamanni ársins skal fara fram íbúakosning sem gildir á móti kosningu aðal- og varamanna í íþrótta- og æskulýðsráði. Kosning fer fram með þeim hætti að allir sem eru orðnir 15 ára geta kosið og er það gert í gegnum Mína Dalvíkurbyggð.

Tilnefndir eru:

Tilnefningar                                  Íþróttagrein
Andrea Björk Birkisdóttir                Skíði
Arnór Snær Guðmundsson             Golf
Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson    Sund
Svavar Örn Hreiðarsson                  Hestar
Viktor Hugi Júlíusson                      Frjálsar

Kosning fer þannig fram

Þú byrjar á að kynna þér upplýsingar um tilnefnda aðila hér: Tilnefningar til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2016.

Að því loknu geturðu hafið kosningu.

Til þess að kjósa þarf að skrá sig inn á Mín Dalvíkurbyggð , (innskráning er með íslykli eða rafrænum skylríkjum). Þar á forsíðu, vinstra megin, er hnappur sem heitir Kannanir og kosningar. Vinsamlegast smelltu á hnappinn. Þá færistu yfir á síðuna þar sem þú getur hafið kosningu um íþróttamann Dalvíkurbyggðar. Þarna inn kýstu svo þann aðila sem þú telur eiga skilið að hljóta titilinn „íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2016“.

Hægt verður að kjósa um íþróttamann ársins til og með mánudagsins 26. desember 2016. 

Samanlögð kosning íbúa og fulltrúa í íþrótta- og æskulýðsráði mun svo ráða úrslitum um það hver verður kjörinn.
Þeir sem hafa áhuga geta hér kynnt sér reglur um kjör á íþróttamanni ársins.

Nánari upplýsingar veitir Gísi Rúnar Gylfason á netfanginu gislirunar@dalvikurbyggd.is eða á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900.