Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2015

Kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar verður lýst við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Bergi þriðjudaginn 5. janúar 2015 kl. 16:00.

Dagskrá
• 16:00 Gestir boðnir velkomnir með kaffi og kósýheitum
• 16:10 Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
• 16:15 Fulltrúi íþrótta- og æskulýðsráðs veitir viðurkenningar úr Afreks – og styrktarsjóði Dalvíkurbyggðar
• 16:35 Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
• 16:40 Íþróttafélög í Dalvíkurbyggð skrifa undir samning við Dalvíkurbyggð til næstu 4 ára.
• 16:45 Fulltrúi íþrótta- og æskulýðsráðs lýsir kjöri Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2015
• 17:30 Athöfn lokið

Allir velkomnir
Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar