Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð

Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð

Helstu markmið sjóðsins eru að styðja og veita viðurkenningu fyrir góðan árangur og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Einnig að veita viðurkenningar til félaga fyrir gott fordæmi á sviði almenningsíþrótta.

Styrkumsóknir skulu berast í gegnum Mína Dalvíkurbyggð (undir umsóknir) eigi síðar en miðvikudaginn 1. desember 2021.

Reglur sjóðsins má finna hér.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á netfangið gislirunar@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900.