Húsið fullbúið

Húsið fullbúið
 
Húsið er fullbúið og láta gestir vel af .

Nú er ekkert að vanbúnaði fyrir áhugamenn um fugla og friðsæla náttúru að tölta niður að Tjarnartjörn og dvelja í fuglaskoðunarhúsinu einhverja dagstund. Í húsinu eru stólar til að sitja í og fuglabækur á þrem tungumálum auðvelda mönnum greininguna. Gestir á tjaldstæðinu á Húsbakka hafa lagt þangað leið sína og látið stórvel af ferðum sínum enda fjölgar ungamæðrum dag frá degi á tjörninni og loftið ómar sem aldrei fyrr af skvaldri jarðrakana, stelka, spóa og hrossagauka sem hver um sig reynir að draga athyglina frá afkvæmum sínum hímandi í sefinu við hvert fótmál.