Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 31. október  og  6. og 7. nóvember 2017,  alla daga frá  kl.16:00 – 18:00.

  • Hundahreinsun fer fram 31. október og 6. nóvember.
  • Kattahreinsun fer fram 7. nóvember

Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er skylt að örmerkja dýrin, samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt.

Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið.

Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar.

Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.

 

 

Dalvíkurbyggð

Október 2017

 

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.