Hunda- og kattahreinsun í Dalvíkurbyggð

 

Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 1. – 2. og 10. nóvember 2016, alla daga frá kl.16:00 – 18:00.

Kattahreinsun fer fram 1. nóvember og hundahreinsun fer fram 2. og 10. nóvember.

Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er skylt að örmerkja dýrin. Samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi, að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt. Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið og er hunda- og kattaeigendum skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.

Dalvíkurbyggð, október 2016

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs