Hjólum hringinn með Framfarafélagi Dalvíkurbyggðar

Hjólum hringinn.  Fréttatilkynning frá Framfarafélagi Dalvíkurbyggðar .

Laugardaginn 3. júlí verður efnt til hópferðar á hjólum um Svarfaðardalinn. Lagt verður af stað kl. 2 við OLÍS bensínstöðina, hjólað fram Svarfaðardalinn, um Tungurnar og úteftir að austan. Þetta eru 25 km. Farið verður rólega yfir, allavega meginhópurinn, og áð á leiðinni til að snæða nesti. Svo verður kveikt á grillinu í Hánefsstaðareitnum, þar sem menn reyna að bæta sér upp þyngdartapið á leiðinni.

Áætlunin:

  • Lagt af stað frá Olís kl. 14.
  • Nesti borðað á Tungunum kl. 15 30.
  • Komið í Hánefsstaðaskóg kl. 16.30 og grillað
  • Dalbúar geta slegist í för á leiðinni.

 Allir fjölskyldumeðlimir eiga að koma með en þeir lötustu mundu keyra í Hánefsstaðaskóg og undirbúa grillið.

Ef vel tekst til hugsum við að af þessu yrði framhald síðar í sumar. Kanski verður þá haldinn Hjólreiðadagurinn mikli.

Farið strax að undirbúa ykkur. Veðurstofan spáir fínu og kyrrlátu hjólreiðaveðri.