Hestamannafélagið Hringur - 60 ára afmæli

Hópreið Hringsfélaga um götur Dalvíkur á afmælisdaginn sjálfan
Hópreið Hringsfélaga um götur Dalvíkur á afmælisdaginn sjálfan

Félagsmenn í Hestamannafélaginu Hring fögnuðu 60 ára afmæli félagsins í gær en félagið var stofnað 16. júní 1962. Farin var hópreið um götur Dalvíkur og síðan haldið afmælishóf í Bergi. Forseti sveitarstjórnar, Freyr Antonsson, færði formanni félagsins Lilju Guðnadóttur blómvönd og afmælisgjöf frá Dalvíkurbyggð að þessu tilefni.