Hertar aðgerðir, þörf á samstöðu.

Hertar aðgerðir, þörf á samstöðu.

Í gær voru kynntar hertar aðgerðir frá stjórnvöldum vegna kórónaveirunnar. Fjöldi á samkomum miðast nú við 100 manns og tekur 2ja metra reglan gildi frá og með hádegi í dag, föstudaginn 31. júlí. 

Hertar
 aðgerðir hafa áhrif á þjónustu Dalvíkurbyggðar og taka allar stofnanir sveitarfélagsins mið af þessum nýju reglum. Fram á þriðjudag er staðan sú að  í Íþróttamiðstöð lokar ræktin og takmarkanir verða á annarri þjónustu. Söfnin  loka frá hádegi í dag, föstudag og fram yfir helgina. Á þriðjudag verður tekin staðan á ný og skoðað með hvaða hætti þjónusta verður veitt hjá sveitarfélaginu innan settra marka.

Nú þurfum við öll taka okkur á aftur,
 virða reglur, sóttvarnir og gefin tilmæli landlæknis og almannavarna. Þróunin í fjölda smita á landinu undanfarna daga er ógnvænleg og þurfa allir að taka höndum saman til að snúa þessu við.

Hjálpumst að við að minna hvert annað á og vonum að tíminn vinni með okkur í þessari baráttu.