Götusóparinn hefur hafið störf á Dalvík

Í morgun var byrjað að sópa götur Dalvíkur. Götusóparinn verður á Dalvík alla vikuna. Fólk er eindregið hvatt til þess að nota tækifærið og þrífa plön sín og koma sandinum og drullunni út á götu áður en sópurinn klárar. Sýnum einnig tillitssemi og reynum að gera aðgengi götusóparans sem best með því að færa bíla af götum. Fáum Dalvíkina hreina og fína fyrir sumarið sem kemur víst á fimmtudaginn.