Gönguskíðaferð í Mosa

Laugardaginn 2. maí gengst Ferðafélag Svarfdæla fyrir gönguskíðaferð fram í Mosa, skála félagsins í botni Böggvisstaðadals.

Lagt verður af stað frá skíðasvæðinu við Brekkusel klukkan 10:00. Vegalengdin fram og til baka er 18 km.

Nánari upplýsingar veitir Magnús formaður, Maggi í Svæði, í síma 898-5524.


Allir eru velkomnir með til að njóta hressandi útiveru, góðrar hreyfingar og góðs félagsskapar.


Stjórn Ferðafélags Svarfdæla