Fyrsta flug Voigt Travel og Transavia til Akureyrar

Við komuna á Akureyrarflugvöll - strax eftir lendingu var flugvélin hyllt með heiðursboga úr vatni
Við komuna á Akureyrarflugvöll - strax eftir lendingu var flugvélin hyllt með heiðursboga úr vatni

Fyrsta ferð Transavia með ferðamenn á vegum Voigt Travel kom mánudaginn 27. maí frá Rotterdam.  Þetta er fyrsta flugið af 16 hjá Transavia í sumar til höfuðstaðar Norðurlands. Við þetta tækifæri tilkynnti Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel að ákveðið hefði verið að fljúga frá flugvellinum á Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið yrði á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar. Farnar yrðu alls átta ferðir.

Flugleiðin er afrakstur viðamikils samstarfs Transavia og Voigt Travel. Flugfélagið hefur flogið til Lapplands í Finnlandi og Svíþjóð og norðurhluta Noregs um árabil fyrir Voigt Travel. Nú hefur Íslandi verið bætt við lista áfangastaða þess við heimskautsbauginn.

„Sem ferðaskrifstofa þurfum við stöðugt að skapa okkur sérstöðu,“ segir Cees van den Bosch, forstjóri Voigt Travel, sem var meðal farþega í þessu flugi til Akureyrar. „Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það. Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. 

Charles Verstegen, framkvæmdastjóri: „Transavia er með sterka stöðu á þekktum ferðamannastöðum í Suður-Evrópu, Norður-Afríku og Miðausturlöndunum. Með þessu þægilega beina flugi til Akureyrar er nú einnig hægt að komast til norðurhluta Evrópu frá Hollandi á sumrin.“

Um Voigt Travel
Voigt Travel er hollensk ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýraferðum til nyrstu hluta Evrópu. Það er sú ferðaskrifstofa í heiminum sem býður upp á flest bein flug til heimskautasvæðisins í Evrópu. Voigt Travel býður upp á ferðir til átta áfangastaða í Lapplandi í Finnlandi og Svíþjóð, í Norður-Noregi og á Íslandi, bæði á sumrin og veturna, sem gerir þetta svæði sífellt aðgengilegra fyrir ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað sérstakt á ósnortnum áfangastað. Voigt Travel vill verða númer eitt á Norðurlöndunum, og flugum og samstarfsaðilum þess í Norður-Evrópu fjölgar með ári hverju.

„Við bjóðum Voigt Travel og viðskiptavini þeirra velkomna til Norðurlands. Með opnun þessarar nýju gáttar til Íslands um flugvöllinn á Akureyri býðst ferðamönnum nýr og spennandi valkostur þegar þeir heimsækja landið,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri á Markaðsstofu Norðurlands.

Nánari upplýsingar veita:

Rögnvaldur Már Helgason, hjá Markaðsstofu Norðurlands – gsm 868-0799
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia – gsm 856-4540