Fyrir ofan garð og neðan

Fræðsluþing um forna garða í Svarfaðardal og á Árskógsströnd
 
Náttúrusetrið á Húsabakka heldur fræðsluþing um forna garða  í Svarfaðardal og Árskógsströnd í Mennigarhúsinu Bergi laugardaginn 6. nóvember kl 13:00-16:00.
Í sumar fóru fram frumrannsóknir á nokkrum af þeim fjölmörgu fornu görðum sem er að finna í Svarfaðardal og Árskógsströnd. Garðar þessir eru án efa elstu mannvirki sem enn eru sýnileg á þessu svæði  og segja mikla sögu um búskaparhætti frumbyggja héraðsins.
Á fræðsluþinginu verða m.a. kynntar niðurstöður öskulagagreininga á aldri garðanna, samanburður gerður á svarfælsku görðunum og sambærilegum görðum í Þingeyjarsýslu  auk þess sem farið verður út í almenna búskaparsögu á svæðinu.
 Flutt verða þrjú framsöguerindi:
Sveitarlangur  og aðrir svarfdælskir garðar  - Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur.
Þjóðveldisgarðar í Þingeyjarsýslum  - Árni Einarsson líffræðingur
Um búskaparhætti Svarfdælinga fyrr á öldum (um 900-1400)“  - Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur
Á eftir framsöguerindum verða almennar umræður og frummælendur svara fyrirspurnum.
Fræðslufundurinn er styrktur af Menningarráði Dalvíkurbyggðar .
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.