Fréttir af skíðamönnum

Skíðasamband Íslands hefur valið þrjá þátttakendur til að taka þátt í Heimsmeistaramóti Unglinga í alpagreinum sem að fram fer í Maribor í Slóveníu 8-16 febrúar næst komandi. Þau eru Guðrún Jóna Arinbjarnardóttir úr Víkingi Reykjavík, Kristinn Ingi Valsson Skíðafélagi Dalvíkur og Kristján Uni Óskarsson Skíðafélagi Ólafsfjarðar.

Kristinn Ingi hefur verið í stöðugri sókn en hann er nú í 545. sæti á heimslista alþjóða skíðasambandsins, FIS, í svigi og í 634. í stórsvigi. Kristinn Ingi er í 44. sæti í svigi og í 46. sæti í stórsvigi í sínum aldursflokki. Kristinn Ingi er fæddur 1985 hann stundar nám og æfingar við skíðamenntaskóla í Oppdal í Noregi.

Björgvin Björgvinsson varð annar á svigmóti sem að haldið var í Oppdal, sunnudaginn 11 janúar. Björgvin átti mjög góða seinni ferð þar sem að hann var með besta tímann rúmlega ½ sekúndu betri tíma en næsti maður í þeirri ferð.