Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

FORELDRAVERÐLAUN 2007

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra verða veitt 15. maí

2007 í 12. sinn. Að auki  verða veitt  hvatningarverðlaun til einstaklinga, skóla, sveitarfélaga og fyrirtækja ef tilefni þykir til.

  TILGANGUR

Með þessari verðlaunaafhendingu vill Heimili og skóli vekja jákvæða eftirtekt á grunnskólanum og því gróskumikla starfi sem þar fer fram og stuðlar að öflugra samstarfi heimila og skóla, sveitarfélaga og fyrirtækja. Tilgangurinn er einnig að hvetja fólk og stjórnendur fyrirtækja til að gefa starfsfólki sínu svigrúm til að sinna skólagöngu barna sinna.

VIÐMIÐ

Leitað er eftir tilnefningum um einstaklinga, sveitarfélög, fyrirtæki, félög eða skóla sem hafa stuðlað að:

-          árangursríkum leiðum við að efla samstarf foreldra og kennara

-          jákvæðum hefðum í samstarfi heimila og skóla

-          því að brúa bilið milli foreldra og nemenda

Í ár verður sérstaklega horft til eftirfarandi viðfangsefna:

            - Markvisst, öflugt og skipulagt starf foreldraráðs eða foreldrafélags

            - Þróunarverkefna sem taka til samstarfs heimila og skóla

            - Nýbúafræðslu þar sem markvisst er unnið með foreldrasamstarf

            - Sveitarfélög sem styðja markvisst við foreldrasamtök og foreldra í sínu sveitarfélagi

SKILYRÐI

Sérstök dómnefnd  sem í sitja fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands, KHÍ, svæðasamtökum foreldra, fræðsluskrifstofum og fulltrúum frá Heimili og skóla mun velja verkefni til verðlauna sem uppfylla eitt eða fleiri af ofangreindum viðmiðum og sem eru í samræmi við eftirfarandi skilyrði:

-          að verkefnið hafi skýran tilgang

-          að verkefnið hafi fest rætur og sýni fram á varanleika

-          að foreldrar komi með einhverjum hætti að verkefninu

TILNEFNINGAR

Tilnefningaraðilar eru foreldrafélög, foreldraráð, skólastarfsmenn, skólastjórar, skólanefndir, nemendur, sveitarstjórnarmenn eða einstaklingar. Senda skal inn tilnefningar á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað á www.heimiliogskoli.is

Nánari upplýsingar má fá á heimiliogskoli@heimiliogskoli.is eða á skrifstofu samtakanna í s.562 7475.

Síðasti skiladagur tilnefninga er 4. apríl 2007