Fjör að Krossum um helgina

Næstkomandi laugardag verður mikið fjör í Dýragarðinum að Krossum en þá mun Elvar Antonsson fljúga yfir Dýragarðinn á Krossum og dreifa karmellum yfir gesti garðsins. Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir en verður þetta fljótlega upp úr  hádegi. Garðurinn er opinn frá 12:00 til 17:00 og verður svokallað Airbrush Tattoo í gangi á laugardaginn ásamt því að gestir geta keypt sér ís, gos, kaffi og meðlæti. Tilvalið að fjölmenna með fjölskylduna í Dýragarðinn að Krossum um verslunarmannahelgina.