Fjóla Dögg ráðin í starf kennsluráðgjafa

Fjóla Dögg ráðin í starf kennsluráðgjafa

Fjóla Dögg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem kennsluráðgjafi á skólaskrifstofu fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar og mun taka við starfinu af Dóróþeu Reimarsdóttur.

Þann 23. júlí síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýsta stöðu kennsluráðgjafa. Umsækjendur voru tveir og voru þeir í stafrófsröð: 

Anna Karen Birgisdóttir, iðjuþjálfi

Fjóla Dögg Gunnarsdóttir, deildarstjóri

 

Fjóla Dögg Gunnarsdóttir mun hefja störf í september og bjóðum við hana velkomna til starfa.