Fjárhagsáætlunargerð 2017

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2017-2020 . Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim skriflega í þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur eða senda í tölvupósti til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í síðasta lagi fimmtudaginn 1. september 2016.

Vakin er athygli á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is , er að finna reglur Dalvíkurbyggðar er gilda almennt um styrkveitingar. Þar kemur fram meðal annars hvaða gögn og upplýsingar þurfa að fylgja með ef um er ræða erindi og/eða umsóknir um styrki, sjá nánar
/static/files/Reglugerdir/fjarmala/120320-Styrkveitingar-almennar-reglur-Dalvikurbyggdar.pdf


Í samræmi við Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að senda inn erindi og hafa þannig möguleg áhrif á forgangsröðun og áherslur í starfs- og fjárhagsáætlunarvinnunni.


F.h. Dalvíkurbyggðar,
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs
Netfang: gp@dalvikurbyggd.is