Fjáhagsáætlunargerð Dalvíkurbyggðar 2011

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2011. Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim skriflega á bæjarskrifstofuna eða senda í tölvupósti til fjármála- og stjórnsýslustjóra fyrir 19. október 2010.

Starfandi fjármála- og stjórnsýslustjórinn í Dalvíkurbyggð
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
netfang: katrindora@dalvik.is