Félagsmiðstöðin Týr óskar eftir starfsmanni í hlutastarf

Viltu taka þátt í að móta og efla gott fagstarf í frístundahúsinu Víkurröst í Dalvíkurbyggð? Sveitarfélagið óskar eftir hlutastarfsmanni í 20% vinnu frá byrjun mars - 31. maí.

Hæfniskröfur:
• Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
• Metnaðarfullur í starfi og hæfni til að vinna í hóp
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og þörf til að ná árangri
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er kostur

Frekari upplýsingar gefur forstöðumaður Víkurrastar, Viktor Már Jónasson, og skulu ferilskrár og kynningarbréf send rafrænt á viktor@dalvikurbyggd.is  og verður móttaka þeirra staðfest.

Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.


Umsóknarfrestur er til 27. febrúar 2015.